top of page

Skógarfang 2018


Skógarfang, 8 fundur, Hvanneyri

8 fundur í teymi um afurðir og markaðsmál skógræktar,

Hvanneyri fimmtudaginn 8.mars 2018

Mætt voru:

Bergrún Anna Þorsteinsdóttir,

Björn B. Jónsson,

Jóhann Gísli Jóhannsson,

Gunnar Sverrisson,

Hrönn Guðmundsdóttir, fundarstjóri og

Hlynur Gauti Sigurðsson skráði fundinn.

Benjamín Örn Davíðsson tilkynnti forföll.

Dagskrá:

Dagskrá fyrir hádegi.................................................................................. 2

Ársyfirlit 2017............................................................................................ 2

Gæðamál og staðar.................................................................................. 2

Nýsköpun.................................................................................................. 2

Landbúnaðarsýning.................................................................................. 2

Framleiðnisjóður....................................................................................... 2

Hádegishlé 12:30 – 13:10.......................................................................2

Dagskrá eftir hádegi................................................................................. 3

Jóatrjáaræktun, næstu skref?.................................................................. 3

Lækkun grisjunarkostnaðar...................................................................... 3

Afurðamiðstöð á Suðurlandi..................................................................... 3

Líf í lundi................................................................................................... 3

FSV mætir á fund (14:00)......................................................................... 4

Fundarslit (16:00)..................................................................................... 4

Dagskrá fyrir hádegi

Veður var með verra móti og hófst fundur því ekki fyrr en 11:48

Ársyfirlit 2017

Björn fór yfir mál Skógarfangs frá síðasta ári og skilaði samantekt inn á fundinn.

Hlynur ætlar að senda samantektina á formenn aðildarfélagana.

Samantektin verður lögð fram á Aðalfundi LSE 5. okt nk..

Gæðamál og staðar

Björn kynnir vinnu við staðla og gæðamál.

Eiríkur Þorsteinsson heldur utan um verkefnið, staðsettur í Nýsköpunarmiðstöð. Ætlunin er að búa til staðla fyrir úrvinnslu timburs og sameiginlegt fræðsluefni. Efnið verður svo kennslugögn í 4 daga námskeiði. Eiríkur langt kominn með það. Það sem helst vantar er:

- hvernig rækta skal gæða skóg

- staðla um ösp

- staðla um handverksefni.

Vinnuhópur er samansettur af: Björn B. Jónsson, Eiríkur Þorsteinsson, Björgvin Eggertsson, Ólafi Oddsson, Gústaf Jarl Viðarsson og Hlynur Gauti Sigurðsson . Fyrsti fundur hópsins er fyrirhugaður 19. feb nk.. Skógarvörðum og öðrum fagmönnum verður boðið að leggja mat á vinnuna þegar hún verður komin lengra á veg. Verið er að sækja styrki við framvindu verkefnisins.

Nýsköpun

Björn útskýrir og færir fundinum lesmál.

Ungur listamaður/iðnhönnuður og mikil áhugamaður um íslenska skóga, Björn Steinar Blumenstein, vill vinna með skógargeiranum við að þróa vöru/vörulínu úr íslensku timbri. Hönnuðurinn mun verða með kynningarbás í Hönnunarmars og flytur þar erindi við opnun um nýtingu íslensks viðar.

Björn Steinar hefur þegar fengið efni í þróunarvinnu frá Skógræktinni. Hann vill ólmur halda áfram vinnu af þessu tagi og stefnir á að skila vöru á markað innan árs. Enginn veit þó hver varan er.

Björn Steinar sækir um 200-300 þúsund króna styrk. Styrkurinn á að dekka laun umsækjanda fram yfir Hönnunarmars sem og útlagðan kostnað við sýninguna.

Tekið var vel í hugmyndir Björns Steinars. Styrkumsókn verður lögð fyrir stjórnarfundi LSE með tölvupósti á þriðjudaginn, 13.febrúar.

Mikilvægt að mynda hóp í kringum BSB til að fylgja verkefninu eftir og mynda tengslanet.

Landbúnaðarsýning

Björn minnir á Landbúnaðarsýningu sem fer fram 12. október í Laugardalshöllinni. Athuga hvernig vænlegt sé að koma skógarafurðum á framfæri á henni.

Framleiðnisjóður

Hrönn segir frá því að umsókn um styrk til viðarmagnsúttektar hefur verið tekin til afgreiðslu hjá Framleiðnisjóði. Ekki er búið að gera svör opinber.

Hádegishlé 12:30 – 13:10

Snæddur fiskur í mötuneyti Landbúnaðarháskóla Íslands.

Dagskrá eftir hádegi

Jóatrjáaræktun, næstu skref?

Fyrir fundinn var nokkurt lesefni. Hlynur hafði sent út póst á hagsmunaaðila og nokkur viðbrögð fengust. Svörin voru frá: Björn B. Jónsson, Pétur Halldórsson, Sólveig Jónsdóttir, María E. Ingvadóttir, Brynjar Skúlason, Sævar Hreiðarsson, Anna Guðmundsdóttir, Jóhann Þórhallsson, Bjarki Jónsson, Guðmundur H. Guðmundsson og Benjamín Örn Davíðsson. Ekki var farið nákvæmlega yfir lesefnið á fundinum.

Aftur að fundi.

  • Björn vill hrósa jólatrjáamörkuðum á landsvísu s.s. flugbjörgunarsveitum, Barra, Kjarna og Heiðmörk.

  • Sólveig á Vesturlandi hefur forystu-áhuga á jólatrjáamálum.

  • Fjölmargir einstaklingar eru kunnugir jólatrjáarækt og má telja til sérfræðinga.

  • Gunnar bendir á að jólatrjáaræktun svipar meira til garðyrkju en skógræktar.

  • Jóhann og Þröstur hafa átt samtal. Ef þetta væri falið Skógrætinni þá þarf framlag ekki að ná 97%, það mætti t.d. vera 40%

  • Begga bendir á kvæmaval, Jólatré í sérræktun eru nýleg á markaðnum. Gæðastaðlar, eða því sem næst, gæti nýst söluaðilum/kaupendum.

  • Jóhann veltir upp hugmynd með að vænlegra sé að beina orku/peningum á færri hendur frekar of margar, þannig næst frekar viðunandi árangur.

  • Björn leggur til að skipuð verði 4 manna nefnd (NSAU) til að halda utan um ræktun meðal skógarbænda. Skógræktin mun áfram veita ráð og vera sérfræðingar.

  • Begga. Sambærilegar hreyfingar verði meðal annarra framleiðenda og mynda samráð milli landshluta.

  • Björn leggur til að Formaður og framkvæmdastjóri hitti skógræktarstjóra og útskýri hagsmuni og vinni saman að uppbyggilegri lausn.

Lækkun grisjunarkostnaðar

  • Hlynur lýsir reynslu sinni af bilun (sbr. Millibilsjöfnun, Snemmgrisjun og Gisjun (ath. ekki fyrsta grisjun)) á Héraði. Þar leggur hann til að fara fyrr inn í skóga og auðvelda vinnuna með lækkaðri greiðslu á hektara. Á sama tíma verður svigrúm við að framkvæma bilunina breikkað með það fyrir augum að hægt sé að nálgast jólatré þegar við á.

  • Björn tekur undir með Hlyni. Hann bætir við öðruvísi módeli við ösp. Þetta þarf frekari útfærslu.

  • „Digra-Sigga“ er félag sem hefur verið stofnað um kaup og rekstur á vél sem Gunnar segir frá. Á Suðurlandi er komin vél sem að afkvistar og bútar niður tré sem hentar t.d. í asparreiti. Hefur hug á að nýta efniviðinn fyrir afurðamiðstöðina á Suðurlandi.

Afurðamiðstöð á Suðurlandi

Gunnar segir frá vinnu sem gengur út á að stofnsetja afurðamiðstöð á Suðurlandi. Forsendur eru að 100 milljónir gangi í félagið og þá yrði miðstöðin ekki skuldsett. Skógarbændur munu fá greitt fyrir efni sem þeir leggja til en fyrirkomulag á þeim kaupum á hráefni er þó ekki klárt.

Hrönn bendir á að lægsti hlutur í afurðamiðstöðinni sé 500 þúsund krónur og verið er að safna fjárfestum sem stendur. Ingvar Pétur er framkvæmdastjóri verkefnisins.

Bent er á að þar sem skýrslan sé unni fyrir opinbert fé skuli hún vera opinber og því aðgengileg öllum sem þess óska.

Líf í lundi

Unnið hefur verið að því að á Jónsmessu sé fyrirhugað að gera sameiginlegan skógardag á landsvísu. Þessi vinna hefur verið leidd af Skógaræktarfélagi Íslands. Hljótt hefur farið fyrir þessari vinnu og kom það flatt upp á bæði Björn og Jóhann þegar bréfleiðis barst til LSE bréf um þetta samstarf þar sem hvatt var til þess að taka þátt. Óánægja var á fundinum. Hugmyndin þótti ekki slæm, að sameinast um hátíð í skógi á landsvísu, en hvernig staðið var að undirbúningsvinnunni þótti ámælisvert. Jóhann og Brynjólfur hjá Skógaræktarfélagi Íslands ætla að tala saman á mánudaginn kemur.

FSV mætir á fund (14:00)

Til fundar komu tveir meðlimir stjórnar Félags skógarbænda á Vesturlandi, þau Bergþóra Jónsdóttir formaður og Guðmundur Sigurðsson gjaldkeri (Halla Guðmundsdóttir komst ekki vegna veðurs).

Margt var til umræðu en það sem bar helst á góma var helst þrennt.

  1. Afurða- og markaðsmál: Vonir eru bundnar við að niðurstöður úr viðarmangsmælingum gefi hugmynd um hvað koma skal. Hvar sé best að huga að afurðamiðstöð og í kjölfarið hvernig hátta á markaðsmálmum.

  2. Meðhöndlun jólatrjáa og utanumhald á sölu þeirra: Þörf er á stefnu og skipulagi við markaðsmál á jólatrjám, bæði á Vesturlandi sem annarsstaðar. Væntanlega getur framkvæmdarstjóri LSE haldið utan um þessi mál og upplýst stöðuna á heimasíðu skogarbondi.is .

  3. Umhirðunámskeið: Mikil þörf og há krafa er um nauðsyn þess að uppfræða skógarbændur á Vesturlandi um ungskógarumhirðu. Hlynur sér fyrir sér að koma að námskeiðshaldi í samvinnu við LBHI í apríl..

Fundarslit (16:00)

Fundarmenn héldu áleiðs til á flugvöllinn eða til síns heima. Á Hvanneyri hélt þó fundarsetan áfram.

Í kjölfar Skógarfangs-fundar var óformlegur stjórnarfundur FsV þar sem fundarmenn voru Bergþóra, Guðmundur og Hlynur. Þeim fundi lauk kl 18:00.

Skógarfang, 9 fundur, Símafundur​​

9 fundur í teymi um afurðir og markaðsmál skógræktar,

Símafundur fimmtudaginn 22.mars 2018

Símanúmer á fundinn: 7557755, aðgöngunúmer 222 2222

Mætt voru: Benjamín Örn Davíðsson, Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, Björn B. Jónsson, Jóhann Gísli Jóhannsson, Gunnar Sverrisson og Hlynur Gauti Sigurðsson skráði fundinn.

Fundur hófst kl 11:10 og lauk 11:40

Dagskrá:

  • Gæðamál og staðar

  • Nýsköpun

  • Landbúnaðarsýning 2018

  • Styrkumsókn hafnað

  • Jólatrjáaræktun

  • Önnur mál, „Boðið heim í skóg“

Gæðamál og staðar

Björn og Hlynur hafa setið tvo fundi. Eiríkur Þorsteinsson leiðir vinnuna.

Mannvirkjastofnun: Fundarefni: Ösp sem byggingarefni. Fundarmenn frá Mannvirkjastofnun voru Björn, Jón og Benedikt. Aðrir fundarmenn voru: Eiríkur, Björn B. J. og Hlynur. Farið var yfir CC staðla og það sem fyrir er á Íslandi. Til eru staðar um burðarvið furu, lerki og greni. Óskað var eftir að vinna samskonar staðal fyrir ösp. Fundarmenn beina ósk til Staðlaráðs Íslands en lýsa ánægju með verkefnið. Björn og Hlynur eru búnir að senda bréf til Staðlaráðs.

IÐNÚ: Fundarefni: Kennsluefni fyrir nám í læsi á gæðatimbri. Fundarmenn frá IÐNÚ voru Heiðar Ingi og Völundur. Aðrir fundarmenn voru: Eiríkur, Björn B. J., Hlynur, Ólafur, Björgvin og Gústaf. Farið var inn á útgáfu á stöðlum og kennsluefnis. Von var á svörum frá Svíþjóð um hvort við mættum nota staðlana þeirra og íslenska þá. Ekki var farið nánar út í hvaða form kennsluefnis væri hentugt, en mögulega þarf að skoða aðra möguleika en bara bók.

Nýsköpun

Björn Steinar Blumenstein fékk 200.000 kr styrk frá LSE og samsvarandi frá Skógræktinni. Hann var með sýningu á HönnunarMars og erindi á setningunni í Hörpu sem hvorutveggja vakti mikla lukku. Sýningin sjálf var í Heiðmörk og stóð saman af verkum 23 innlendra sem erlendra hönnuða. Rúv sýndi verkefninu mikinn áhuga og fékk meðal annars góða umfjöllun hjá Gísla Marteini og í Menningarþættinum. Fjölmiðlar koma til með að fjalla meira um sýninguna og nú þegar hefur Björn fengið 6 blaðsíðna umfjöllun um síg í blaði HönnurnarMars.

Landbúnaðarsýning

LSE fær úthlutað 18 fermetra bás á Landbúnaðarýningunni og Skógræktin með 9 fm.

Styrkumsókn hafnað

Umsókn um styrk hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins vegna Viðarmagnsúttektar á landsvísu var hafnað. Sótt var eftir styrk að upphæð 22,5 milljónir og átti heildar fjármögnun verkefnisins að vera 49 milljónir. (frekari umfjöllun í fyrri fundargerðum.)

Jóatrjáaræktun

Hrönn Guðmundsdóttir hefur tekið að sér umsjón með vinnuóp sem vinnur að mótun framtíðarstarfs jólatrjáaræktar skógarbænda. Hópurinn hefur ekki enn komið saman. Nefndin: Hrönn Guðmundsdóttir, Jóhann Þórhallsson, Sighvatur Jón Þórarinsson, Anna Ragnarsdóttir og Sólveig Jónsdóttir.

Önnur mál

„Boðið heim í skóg“ er heiti námskeiðs sem er ætlað áhugafólki um skógrækt, skógareigendum og starfsfólki í skógrækt og öðrum þeim sem hafa áhuga á að taka á móti hópum í skóglendi. Það verður haldið á laugardaginn kemur (24.mars 2018) og er sameiginlegt verkefni samstarfsaðila um skógarfræðslu þ.e. Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðslunnar, Landsamtaka skógareigenda, Skógræktarfélags Íslands og Skógræktarinnar.

Næsti fundur fyrirhugaður 10.apríl á Akureyri. Væntanlega kl 16:00. Nánari staðsetning auglýst síðar.

Skógarfang, 10 fundur, Akureyri

10. fundur í teymi um afurðir og markaðsmál skógræktar. Gamla gróðrarstöðin, Akureyri. Þriðjudagur 10.apríl 2018, kl 16:15

Haldinn daginn fyrir Fagráðstefnu Mætt voru: Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, Björn B. Jónsson, Jóhann Gísli Jóhannsson, Gunnar Sverrisson og Hlynur Gauti Sigurðsson skráði fundinn. Benjamín boðaði forföll.

Fundur hófst kl 16:15 og lauk 18:30

Dagskrá: 1 Tækjamál og grisjun 2 Staðlar og gæðamál 3 Styrkur upp á 1,5 milljón 4 Tímaáætlun Skógarfangs 5 Hönnunarmars, framhald 6 Sala á timbri 7 Næsti fundur

1. Tækjamál og grisjun Hlynur og Jóhann segja frá ferð sem farin var til Finnlands til að skoða Valtra traktora og Kesla krana en fyrirtækin tvö eru í nánu samstarfi. Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötunvéla, var fararstjóri. Auk verksmiðjanna var skoðað kurlfyrirtæki, fjós og grisjun.

2. Staðlar og gæðamál Björn segir frá. Svíar hafa gefið leyfi fyrir að þýða, heimfæra og gefa út íslenskan bækling sem fjallar um staðla og viðargæði. Í endurútgáfunni þarf að geta hvaðan efnið er fengið. Nýsköpunarmiðstöð getur ekki fjármagnað verkefnið í gegnum „Átak til atvinnusköpunar“ eins og var fyrirhugað. Það setur verkefnið í pásu uns verkefnið er fjármagnað. Leitað er að styrkjum, meðal annars út fyrir landsteinana. IÐNÚ sýndi verkefninu áhuga og vildi leggja því lið. Verið er að undirbúa yfirlýsingu um samkomulag milli Skógræktarinnar, LSE, LBHI, Skógræktarfélags Reykjavíkur. Björn og Hlynur halda verkefninu áfram.

3. Styrkur upp á 1,5 milljón LSE hefur fengið vilyrði um styrk vegna verkefnisins „Viðarmagnúttekt á landsvísu“. Hugmyndir um not fyrir styrkinn voru ræddar. Hvernig nýtist hann best upphaflegu markmiði. Hlynur ætlar að leita viðbragða Ellerts Arnars Maríssonar, MS skógfræðinema í Svíþjóð, um hver næstu skref ættu að vera og hvort hann hafi tillögur. Einnig skal leita álits annarra kunnáttumanna. ...

4. Tímaáætlun Skógarfangs Tímaáætlanir hafa gengið eftir. Björn fór yfir undanfarin verkefni Skógarfangs lið fyrir lið. Nefndin vill hitta stjórn Félags skógarbænda á Vestfjörðum og leggur til að koma á fundi á aðalfundi LSE 5. Október n.k. Hlynur kemur fundinum á fót. ...

5. Hönnunarmars, framhald Björn Steinar, vöruhönnuður, er kominn aftur til Íslands eftir dvöl í Kína. Hann mun hitta Björn og Hlyn við fyrsta tækifæri. Vilji er meðal nefndarinnar að halda áfram samstarfi við Björn og mun verða leitað leiða til að kosta starf hans áfram.

6. Sala á timbri Sameiginlegan markað vantar þar sem bændur geta selt hráefni eða vörur sínar úr skóginum. Það mætti vera miðlægt á heimasíðu LSE. Hlynur ætlar að koma með tillögu að því fyrir næsta fund. ...

7. Næsti fundur Áætlaður er símafundur fimmtudaginn 10.maí kl 11:00 Tillaga að fundi á Selfossi föstudaginn 8. júní n.k. kl:10:00

Skógarfang, 11 fundur, Símafundur

11. fundur í teymi um afurðir og markaðsmál skógræktar. sími 755 7755 nr. 222 2222 Þriðjudagur 25. maí 2018, kl. 11:00-12:00

Mætt voru: Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, Björn B. Jónsson, Gunnar Sverrisson og Hlynur Gauti Sigurðsson skráði fundinn. Jóhann Gísli Jóhannsson kom seint á fundinn vegna boðleiðamistaka skrásetjara.

- Hlynur fjallaði um LiDAR mál. Björn Traustason og Hlynur áttu fund með fulltrúum Svarma um möguleika til nýtingar við skógmælingar. Svarma og Verkís munu fá LiDAR myndavél í sumar. Væntanlega verður komin reynsla á þetta í lok sumars.

- Hlynur fór á fund Félags skógareigenda í Evrópu (CEPF) á þriðjudaginn þar sem hann hitti Laura Salo, skrifstofustjóra (office manager) og Hélène Koch, ráðgjafi (CEPF Policy Advisor). Laura hélt kynningu á samtökunum sem vinna samskonar vinnu og LSE, bara í Evrópsku samhengi. Það kostar 2000 evrur (ca 250.000 kr) á ári að vera í samtökunum fyrir lítil félög. Mögulega gætu LSE haft áheyrnarfulltrúa á aðalfundi 2019 í Portúgal ef vilji væri fyrir því.

- Björn sagði frá athöfn, sem fór fram í Heiðmörk í gær, af útgáfu Gróðureldabæklings og vefsíðu. Löngu starfi hér með ýtt úr vör. Spurning með aðkomu tryggingafyrirtækja í kjölfarið.

- Gæðastaðlar, Björn segir frá. Yfirlýsing fyrir samvinnu Skógræktarinnar, LSE, Skógræktarfélags Reykjavíkur, LBHI og Nýsköpunarmiðstöðvar er í ferli.

- Umræður hófust um næsta fund. Stefnt er hittast á Suðurlandi og fara í heimsóknir, m.a. Límtré. Gunnar ætlar að skoða það. Ákveðið var að halda næsta fund skömmu eftir Verslunarmannahelgina.

Framtíðin tók til máls og fundi slitið á hádegi.

Skógarfang, 12 fundur, Heimsókn á Suðurland

Mánudaginn 20.ágúst 2018 kl 11:30

Fyrri hluti haldinn í Hrosshaga og seinni hluti haldinn í Friðheimum.

Mættir voru: Jóhann Gísli Jóhannsson, Gunnar Sverrisson, Björn B. Jónsson, Bergrún Arna Þorsteinsdóttir og Hlynur Gauti Sigurðsson (skráði fundinn).

kl 11:00 fundur hófst í Hrosshaga.

1 Gæðastaðlar.

Björn gerir grein fyrir stöðunni. Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing af forstöðumönnum samstarfsaðila: LBHI, Nýsköpunarmiðstöð, LSE, Skógræktin og Skógræktarfélag Reykjavíkur. Fyrirhugaður er fundur með viðargæðateymi á morgun.

Helstu mál: >Yfirfæra sænska staðla > Menntun og kynningarefni. Námskeiðið í „frá skógi til vinnslu“

2 Skogur.is

Björn segir frá nýlega uppsetri síðu; skogur.is. og bendir sérstaklega á afurðahlutann.

3 Söluafurðir skógarbænda.

Hlynur segir frá vinnu sem fer fram á skogarbondi.is/afurðir. Svipar afurðahluta skogur.is sem greint var frá í línum á undan. Verkefnið gengur út á að hafa alla sölu og þjónustu skógarbænda á vísum stað á heimasíðu LSE.

4 Landbúnaðarsýning, Björn segir frá stöðu Skógræktarinnar og básnum þeirra.

Áherslur eru á : Ráðgjöf, Rannsóknir (kolefnismál) og áætlanagerð.

5 Hlynur, segir frá hugmyndum um að markaðssetja íslenska lerki-girðingastaura sem úrvalsafurð án kolefnisfótspors.

Fundurinn flytur sig í Friðheima og fundarmenn snæða þar tómatsúpu eftir að hafa hlýtt á Knút Ármannsson, eiganda Friðheima, segja frá starfinu á Friðheimum.

6 Hlynur segir frá samtarfi Skógræktarinnra, LSE og Svarma. Fyrirhugaðar eru tilraunamælingar með dróna og LiDAR tækni, en LiDAR myndavél er komin til landsins og eru eigendur Svarmi og Verkís. Í byrjun september verður að vænta næstu frétta.

7 Staðan í dag, kaflaskil. Björn greinir frá. Minnt er á að teymið eigi að skila af sér skýrslu í janúar 2020. Benjamín Örn Davíðsson hefur lokið störfum fyrir teymið, að sinni að minnsta kosti, og ætlunin var að Gunnlaugur Guðjónsson tæki við aftur, en hann sat teymið við upphaf. Hann mun draga sig út úr teyminu og leggur til að Johan Holst komi í hans stað. Allir samþykkir því. Gunnlaugur mun vera teyminu innan handar ef til hans er leitað.

Bergrún ætlar fara heildrænt yfir söluafurðir á Hallormsstað.

Björnog Hlynur ætla að koma með uppdrátt af skýrsluinnihald á næsta fund.

8 Önnur mál

Björn tekur til máls.

a) Björn Steinar Blumenstein er farinn að kortleggja skógarafurðastöðvar á landinu og ætlar að hitta bændur ásamt vinnslusvæðum þjóðskóga Skógræktarinnar. Hann sér fyrir að koma með vöru á Hönnunarmars. Hann sækist eftir styrkjum til LSE fyrir þriggja mánaða verkefni. Umsóknin verður tekin fyrir á næsta fundir stjórnar LSE.

b) Gefa þarf frumkvöðlum í skógarafurðarvinnslu fjárhagslegan stuðning á fyrstu stigum. Vinna að þarf að styrkjafyrirkomulagi. Til að mynda gæti hálf milljón verið gott viðmið. (kolefnissjóður LSE)

C) Þörf á fundi með iðnaðarráðherra vegna úrvinnslumál. Hlynur ætlar að óskar eftir fundi fyrir hönd Skógræktarinnar og LSE, SÍ. Best að hann og Björn vinni saman í þessu.

Ekki var fleira rætt og var formlegum fundi lokið kl 13:50

Kl 14:00 var farið í vettvangsferð í Límtré/Vírnet. Steingrímur Jónsson tók á móti hópnum og fór yfir vinnsluna hjá fyrirtækinu.

Kl 15:00 var skógarvinnsluaðstaðan á Snæfoksstöðum skoðuð þar sem Böðvar Guðmundsson tók á móti hópnum.

Kl 16:30 lauk formlegri dagkrá eftir ágætan dag.

Skógarfang, 13. teymisfundur, SKYPE x 3

Skógarfang, 13. teymisfundur í afurða og markaðsmálum skógræktar.

FUNDARGERÐ

„SKYPE x 3“

Fimmtudaginn 1. nóvember 2018 kl 10:20

Mættir voru við tölvuna: ...á Hallormsstað: Bergrún Arna Þorsteinsdóttir og Jóhann Gísli Jóhannsson... ...á Selfossi: Björn B. Jónsson og Gunnar Sverrisson... og í Reykjavík: Hlynur Gauti Sigurðsson, sem skráir fundinn. Johan Holst komst ekki.

Fundur átti að hefjast kl 10:00 en takmörkuð þekking Hlyns á Skype seinkaði fundi til 10:20

1

Samantek (Björn og Hlynur)

Hlynur bjó til Excel-skjal, byggt á gögnum frá Birni Jónssyni, kvöldið fyrir fundinn. Ekki náðu allir að kynna sér skjalið fyrir fundinn. Skoðað gaumgæfilega á næsta fundi.

2

Björn Steinar Blumenstein fer á flandur

Björn Steinar ætlar að flakka um landið næsta mánuðinn og kortleggja viðarvinnslu á 60 stöðum. LSE hefur styrkt hann um 80.000 kr og Skógræktin hýsir hann og tekur á móti honum. Hlynur setur sig í samband við Björn Steinar og leggur til að til að hann hafi samband við formenn aðildarfélaga LSE. Vert er að láta formenn vita af komu hans og jafnvel að þeir bjóði honum á stjórnarfund, ef hægt er.

3

Landbúnaðarsýning LSE

Básinn lofaður í hástert og mikil þjónusta veitt af skógarbændum. Hlynur ætlar að senda út tölvupóst á sýnendur og athuga viðbrögð.

4

Landbúnaðarsýning Skógræktin

Básinn stílhreinn og flottur. Mikið spjall. Taka þarf til athugunar að Skógræktin og LSE þurfi að taka sig á við kynningu á nytjaskógrækt/bændaskógrækt. - 70 umsóknarblöð var dreift til almennra bænda.

5

Drónamál (Hlynur)

Tryggvi Stefánsson hjá Svarma hélt stutta kynningu á kortagerð með dróna á aðalfundi LSE sem haldinn var á hellu 5. október sl. 70 manns voru til áheyrnar. Tryggvi og Hlynur héldu sameiginlega fyrirlestur á Landbúnaðarsýningunni sem var 12. október sl. 20 manns voru til áheyrnar. Tryggvi og Hlynur ásamt sérfræðingum frá Skógræktinni á Mógilsá, þeim Birni Traustasyni, Bjarka Þór Kjartanssyni og Arnóri Snorrasyni áætla samstarf um áframhaldandi þróun á notkun flygilda við kortlagningu á skógum.

6

Hallormsstaður, söluafurðir (Begga)

Sú viðargerð sem merst er seld af á Hallormsstað er eldiviður (aðallega birki). Sá markaður gæti verið stærri. Begga ætlar að athuga heildarmagn eldiviðar, bæði innflutt og innlent. (ösp, birki, fura, greni, lerki) Mælieining er fast rúmmál.

Magn bolviðar frá Hallormsstað er 20 -22 rúmmetrar af full unnu efni. Langmest lerki en ösp er sækir á. Þörf er á að vekja meiri athygli á greni. Meira verður rætt um tölur úr skógum, innfluttum og innlendum á næsta fundi.

7

Gæðafjalir, staðan

Hópur sem starfar undir nafninu „Gæðafjalir“ (þar til annað og betra nafn finnst) er að fara af stað fyrir alvöru. Fastur fundartími hefur verið ákveðinn og er hann hálfs mánaðalega.

Leitað var til sendiherra Svíþjóðar eftir samstarfsfleti. Það gekk mjög vel og vinnur Björn í því að fastmóta það samstarf. Svíar hafa úr nægu fræðsluefni að bjóða, vandamálið er að vinsa úr.

Þýða þarf sænska regluverkið yfir á íslensku.

Eiríkur Þorsteins hefur verið að vinna gögn fyrir timburflokkun fyrir ösp, INSTA staðlar.

Kotlagning á timburvinnslum er hafin en kortlagning á viðarmagni gengur hægar.

Vonir standa til að Svíar fjármagni verkefnið að einhverju leiti.

Eiríkur mun væntanlega koma með kostnaðaráætlun á þarnæsta fundi. Leita þarf styrkja í kjölfarið.

Verefninu á að vera lokið 2020.

8

Stefna í afurðamálum til framtíðar, Skýrslan

Leggja þarf drög að því hvernig ætlunin er að vinna næstu árin að afurðamálum á Íslandi. Áhersla skal vera á fræðslu, gæðamál, hvernig er staðan í dag til að geta metið hvernig hún mun þróast.

Björn kynnti drög af lokaskýrslu. Nánar verður fjallað um Framtíðarstefnuna á næsta fundi.

9

Áætlun um útgjöld teymishópsins 2019

Verið er að vinna fjárhagsáætlun hjá Skógræktinni. Engir stórir útgjaldaliðir eru í burðarliðinum hjá Skógarfangi.

Fundi lauk kl 11:25

Ákveðið var af fundarmönnum og fjarverandi að næsti fundur yrði í Bændahöllinni í Reykjavík þann 28. nóvember kl 13:00.

Skógarfang, 14. teymisfundur, Bændahöll

verður haldinn 28.nóv 2018

bottom of page