Líf í lundi
Líf í lundi laugardaginn 23. júní
Laugardaginn 23. júní verður haldinn útivistar- og fjölskyldudagur í skógum undir merkinu Líf í lundi. Markmið hans er að fá almenning til að heimsækja skóga landsins og stunda hreyfingu, njóta samveru og upplifa skóga og náttúru landsins. Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði í átján skógum um land allt, bæði rótgróna viðburði eins og Skógardaginn mikla og Skógardag Norðurlands og nýja viðburði.
Að deginum standa Skógræktarfélag Íslands og aðildarfélög þess, Skógræktin og Landssamtök skógareigenda, í samvinnu við önnur félagasamtök og stofnanir. Arion banki styrkir verkefnið.
Nánari upplýsingar um einstaka viðburði eru á Skógargátt vefsíðunni – https://www.skogargatt.is/ og á Facebook-síðu Lífs í lundi – https://www.facebook.com/lifilundi.
Nánari upplýsingar veita Jón Ásgeir Jónsson (jon@skog.is s. 865-3080) og Ragnhildur Freysteinsdóttir (rf@skog.is s. 897-1010).