Ágætu félagar,
Nú rekur hver stórviðburðurinn annan. Í kjölfar forsetakosninga kemur áttræðisafmæli Íslenska lýðveldisins OG SVO:
Sunnudaginn 23.júní - afmælishátíð FsV!
Við höldum vestur í Dali, að Hrútsstöðum rétt sunnan Búðardals, til Bergþóru og Böðvars.
Skipulagið: Ef þátttaka verður næg þá:
1) Fer rúta frá Borgarnesi kl13 (mikilvægt er að láta okkur vita um þátttöku og hvort ferðast er með rútu eða á eigin vegum) Best að tilkynna það í netfangið: krimag@simnet.is
2)Brekkuskógur í nyrsta hluta Búðardals um kl14. Jakob Kristjánsson formaður Skógræktarfélags Dalamanna segir frá reitnum.
3) Um kl 15, komið að Hrútsstöðum, gengið um skóginn í leiðsögn Bergþóru Jónsdóttur skógarbónda og skógfræðingur. Smá nasl í skógi og síðan samfögnuður í skemmu Böðvars bónda.
4) Upp úr kl 17 heldur langferðabíllinn til baka í Borgarnes.
Sjáumst sem flest
Sigurkarl, Jakob og Kristín
Comments