Ráðstefnan verður haldin 15. maí frá 12:30-16:00 í HMS, Borgartúni 21 og í streymi.
Fjallað verður meðal annars um stöðu, áskoranir og framtíð íslenskra timburvara fyrir byggingariðnaðinn, en auk þess verða nokkur verkefni kynnt sem fengu styrk frá Aski - mannvirkjarannsóknarsjóði og dæmi sýnd um íslensk mannvirki úr timbri.
Ráðstefnan verður hluti af Nýsköpunarvikunni og haldin af Grænni byggð, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landi og skógi, Trétækniráðgjöf slf., og Bændasamtökum íslands.
Dagskrá:
13:00 – 13:05 Loftslagsávinningur timburvara
Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar og aðjúnkt hjá umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
13:05-13:20 CE merking og staðlavinna
Eiríkur Þorsteinsson, trétæknir hjá Trétækniráðgjöf
13:20-13:35 Áskoranir, staða og framtíð íslenskra timburvara
Ólafur Eggertsson, sérfræðingur hjá Land og skógi og dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands
13:35-13:50 Timbur sem efni í nærumhverfinu - Landsfjórðungahús
Auður Hreiðarsdóttir, arkitekt hjá Esja Architecture
13:50-14:05 Einingahús úr yleiningum og íslensku timbri
Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri íslenskra einingarhúsa ehf og Límtré Vírnet
14:05-14:20 Krosslímdar timbureiningar – áhættuþættir og meðhöndlun
Gústaf Adolf Hermannsson, sérfræðingur hjá HMS
14:20-14:40 Hlé
Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri þjóðskóga og landa hjá Skógræktinni
14:40-14:55 Íslensk mannvirki úr timbri
Trausti Jóhannsson, skógarvörður hjá Skógræktinni
14:55-15:10 Tækifæri í timbri
Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt og eigandi Lendager á Íslandi
15:10-15:25 Íslenskt timbur
Hlynur Axelsson, arkitekt hjá HAX arkitektúr og stundakennari við Listaháskóla Íslands
15:25-15:40 Gestastofa í Þjórsárdal
Marcos Zotes, arkitekt og meðeigandi hjá Basalt arkitektum
15:40-15:55 Val á íslensku timbri
Halldór Eiríksson T.ark.
Fundarstjóri: Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnisstjóri Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs
Skráning bæði í sal og í streymi fer fram hér: https://forms.gle/tPiYPZtNgaECUCmVA
Nánari upplýsingar:
Comments